Nico Moreaux kvartett á Múlanum

Nico Moreaux kvartett á Múlanum

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 9. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 9. desember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum leiðir franski bassaleikarinn Nico, sem er vel þekktur innan djasssenunnar bæði í París og Reykjavík, nýjan píanólausan kvartett. Á efnisskránni eru nýjar frumsamdar tónsmíðar ásamt úrvali af uppáhaldslögum Nico eftir hinn goðsagnakennda trommuleikara og tónskáld Paul Motian. Píanóleysið gefur tónlistinni sérstakt rými og leggur áherslu á samspil og frjálsan spuna kvartettsins. Ásamt Nico koma fram trompetleikarinn Snorri Sigurðarson, Jóel Pálsson sem leikur á saxófón og trommuleikarinn Matthías MD Hemstock.

Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu

Flytjendur