Ljóð fyrir framtíðina
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau 31. okt 2026 11:00
Ljóð fyrir framtíðina
📍 Staður: Norðurljós í Hörpu
📅 Dagsetning: Laugardagur 31. október
🕛 Tími: Kl. 11:00
👧 Aldur: 5–15 ára
🎟 Aðgangur: Ókeypis
🤝 Í samstarfi við: Óperudaga
Hvernig hljómar framtíðin þegar börn fá að yrkja um hana?
Í Ljóðum fyrir framtíðina mætast ljóð, tónlist og myndlist í fjölbreyttri og skapandi dagskrá þar sem sköpunarkraftur barna er í aðalhlutverki. Barnakórar og söngvarar flytja ný og eldri verk eftir íslensk og norræn tónskáld við ljóð barna.
Krakkar stíga einnig sjálf á svið og lesa upp eigin ljóð og myndverkum þeirra verður varpað á skjá meðan á tónlistarflutningnum stendur. Hér fá raddir, hugmyndir og listsköpun barna að njóta sín – og framtíðin er þeirra að túlka.
Börnum og forráðamönnum sem hafa áhuga á að senda inn ljóð og myndir og taka þátt í verkefninu er bent á ljodfyrirframtidina.is.
Þátttakendur:
Barnakór Laugarneskirkju
Barnakór Seltjarnarneskirkju
Kvartett Óperudaga
Listahópurinn Húmat, á vegum Félags Írana á Íslandi