Óperudagar
classical
Um flytjanda
Klassískar söngraddir umbreyta þeim rýmum sem þær hljóma í. Þær geta verið stórar eða smáar, mjúkar eða kraftmiklar, fínlegar, fallegar og viðkvæmar – jafnvel svakalegar eða yfirþyrmandi. Þótt þær séu órafmagnaðar ferðast þær um rýmið eins og rafmagn, snerta áheyrendur og hlaða þá nýrri orku.
Á Óperudögum í ár veltum við þessari rafmögnuðu orku fyrir okkur. Við lifum í heimi sem er stöðugt í sambandi: hann er hlaðinn upplýsingum, áreiti, átökum og óvissu en líka fegurð, sköpunarkrafti, nánd og von. Orka getur vissulega verið bæði jákvæð og neikvæð – hún getur leitt fólk saman, ýtt því í sundur eða komið einhverju óvæntu af stað.
Við mannfólkið erum öll hlaðin af reynslu, tilfinningum, minningum og væntingum, vonum og þrám. Þegar lifandi raddir hljóma í rýmum og hljóma fyrir aðrar manneskjur myndast tengingar og eitthvað fer á hreyfingu - hugurinn, tilfinningarnar, minningarnar og meðvitundin. Á hátíðinni bjóðum við gestum að aftengjast hinu daglega áreiti um stund, stinga sér í samband við klassíska sönglist í ólíkum birtingarmyndum og upplifa hvernig órafmagnaðar raddir rafmagna rými.
Verið velkomin á Óperudaga 2026, komið, tengist og fáið ykkur jákvæða hleðslu!
Viðburðir framundan
-
-
Navaranaaq & Ólafs ríma Grænlendings - Sígildir sunnudagarHarpa | Norðurljóssun 1. nóv 2026 16:00Skoða viðburð -
-