HÁTÍÐARGALA - NOC + ELJA
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
lau 31. okt 2026 18:00
Óperudagar í samstarfi við Herning Opera Festival bjóða til stórglæsilegra tónleika í flutningi Nordic Opera Choir og kammersveitarinnar Elju undir stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. Á efnisskránni er fjölbreytt dagskrá þar sem nokkur af þekktustu kóratriðum óperusögunnar munu hljóm, ásamt einsöngsverkum og sjaldgæfari óperuperlum.
Á tónleikunum má meðal annars heyra Kór sígaunanna (Il Trovatore) og Va, pensiero (Nabucco) eftir Verdi, þekktar aríur á borð við Habanera úr Carmen og hinn töfrandi Hummandi kór úr Madömu Butterfly. Á dagskránni eru einnig dásamleg verk eftir m.a. Alexander Borodin, Kaiju Saariaho og Helenu Munktell.
Óperudagar fagna 10 ára afmæli í ár og er hátíðargalað liður í að halda upp á þann merka áfanga!
Nordic Opera Choir er norrænn óperukór skipaður 30 ungum atvinnusöngvurum og söngnemum á aldrinum 18–35 ára frá öllum Norðurlöndunum. Kórinn var stofnaður að frumkvæði Den Jyske Sangskole í Herning árið 2023 með það að markmiði að efla starfsvettvang ungra klassískra söngvara og skapa öflugt faglegt tengslanet þvert á Norðurlöndin.
Á hverju ári koma söngvararnir saman til æfinga og tónleikahalds undir leiðsögn norrænna stjórnenda og leiðbeinenda. Kórinn starfar með hljómsveitum og tónlistarhátíðum á Norðurlöndunum og veitir þátttakendum tækifæri til að þróast listrænt og faglega í öflugu og faglegu norrænu samstarfi.
Verkefnið er að stærstum hluta fjármagnað af A.P. Møller-sjóðnum í Danmörku. Íslenskir styrktaraðilar Óperudaga sem styðja við þetta verkefni eru Tónlistarsjóður, Reykjavíkurborg, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Styrktarsjóður Rutar Hermanns, Ýlir tónlistarsjóður og Kaffi Ó-le.
Fram koma:
Nordic Opera Choir
Elja kammersveit
Einsöngvarar
Stjórnandi: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir