Suðurbæjarlaug
Hringbraut 77, 220 Hafnarfjörður
Um staðinn
Í Suðurbæjarlaug er 12,5 x 25 metra útisundlaug. Innandyra er sérhönnuð kennslulaug sem einnig er góð barnalaug. Úti eru þrír heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur, tvær vatnsrennibrautir og tvö köld kör með mismunandi hitastigi. Vinsæll göngustígur liggur um sundlaugargarðinn.
Sérstakir búningsklefar með gufubaði eru til staðar fyrir bæði kynin við hlið hefðbundinna búningsklefa. Á útisvæði eru einnig búningsklefar undir berum himni.
Í kjallara Suðurbæjarlaugar er Gym Heilsa heilsuræktarstöð með aðstöðu. Í sundlauginni er hefðbundið skólasund, sundæfingar SH, ungbarnasundstímar, vatnsleikfimi og tímar í jóga. Í húsnæði laugarinnar starfar jafnframt nuddari.
Opnunartími:
Mánud-fimmtud. 6:30-22:00
Föstud. 6.30 – 20.00
Laugardaga 08:00-18:00
Sunnudaga 08:00-17:00
Viðburðir framundan
-
-
Flotslökun í Suðurbæjarlaug - tímar í október 1, 8, 15, 22 og 29fim 1. okt 2026 20:00Skoða viðburð -
Flotslökun í Suðurbæjarlaug - tímar í október 1, 8, 15, 22 og 29fim 8. okt 2026 20:00Skoða viðburð -
Flotslökun í Suðurbæjarlaug - tímar í október 1, 8, 15, 22 og 29fim 15. okt 2026 20:00Skoða viðburð -
Flotslökun í Suðurbæjarlaug - tímar í október 1, 8, 15, 22 og 29fim 22. okt 2026 20:00Skoða viðburð -
Flotslökun í Suðurbæjarlaug - tímar í október 1, 8, 15, 22 og 29fim 29. okt 2026 20:00Skoða viðburð