Hótel Holt

Hótel Holt

Bergstaðastræti 37, 101 Reykjavík

Um staðinn

Hótel Holt er fyrsta flokks fjögurra stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. Hótelið, sem byggt var af hjónunum Þorvaldi Guðmundssyni og Ingibjörgu Guðmundsdóttur, var opnað árið 1965 og hefur verið í eigu fjölskyldunnar síðan. Það hefur allt frá upphafi verið þekkt innanlands sem utan fyrir gestrisni og hlýju, notaleg herbergi og framúrskarandi þjónustu. Á hótelinu eru 42 herbergi, þar af fjórar svítur. Herbergin eru innréttuð í sígildum stíl og búin öllum helstu nútíma þægindum. Hótel Holt er einstakt  á sína vísu, en það státar af stærsta einkasafni íslenskrar myndlistar sem prýðir bæði sali og herbergi hótelsins.

Viðburðir framundan

  • Kári Egilsson & Magnus Thorell á Hótel Holti
    Kári Egilsson & Magnus Thorell á Hótel Holti
    fim. 23.07.2026 18:00
    Skoða viðburð