Hólmgarður

Aðalgata 24a, 340 Stykkishólmur

Um staðinn

Hólmgarður er fallegt svæði í miðju Stykkishólms sem setur sinn svip á bæinn.

Árið 1932 hófst kvenfélagið handa við að koma upp trjá- og blómagarði og er garðurinn í daglegu tali því oft nefndur Kvenfélagsgarðurinn. Kvenfélagskonur önnuðust hann í fleiri ár og árið 1985 reistu þær lítið hús í garðinum undir starfsemi sína, Freyjulund.

Garðurinn er lystigarður Hólmara og er m.a. nýttur til ýmissa hátíðahalda.

Vefir:

Viðburðir framundan

  • Litaland - Leikhópurinn Lotta á Dönskum dögum í Stykkishólmi
    Litaland - Leikhópurinn Lotta á Dönskum dögum í Stykkishólmi
    fös. 14.08.2026 16:30
    Skoða viðburð