Vífilstaðir

Vífilsstaðavegur 9, 210 Garðabær

Um staðinn

Vífilsstaðir voru reistir á árunum 1908-10 af íslenskum Oddfellowum sem berklaspítali. Spítalinn var hannaður af Rögnvaldi Á. Ólafssyni arkitekt. Byggingin markaði tímamót bæði í íslenskri heilsugæslu og byggingarsögu, þar sem hún er fyrsta steinsteypta stórhýsið sem teiknað er og unnið af Íslendingum. Húsið er í klassískum stíl, alls staðar samhverft og að mestu leyti skrautlaust. Umhverfis staðinn eru minjar eftir áratuga dvöl berklasjúklinga á Hælinu, en á 100 ára afmæli þess árið 2010, reistu Oddfellowar minnisvarða á staðnum.

Vefir:

Viðburðir framundan

  • Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni - Söguganga á 50 ára afmæli Garðabæjar
    Í fótspor berklasjúklinga með Einari Skúlasyni - Söguganga á 50 ára afmæli Garðabæjar
    fim. 27.08.2026 20:00
    Skoða viðburð
  • Garmin Eldslóðin 2026
    Garmin Eldslóðin 2026
    lau. 12.09.2026 10:00
    Skoða viðburð