Pétur Eggerts
Um flytjanda
Pétur Eggertsson, tónskáld, útskrifaðist með BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands 2018, og MA gráðu frá Mills College í Oakland, Californiu 2020. Við útskrift hlaut hann Margaret Lyon verðlaunin fyrir ágætis árangur í tónlistarnámi. Pétur vinnur í gegnum sjónlistir og gjörninga og er umbreyting hljóðs í gegnum handahófskenndar þýðingar í mismunandi miðla í brennidepli í verkum hans, auk þess sem hlutverk bæði flytjenda og áhorfenda er kannað og aukið. Með tónlist sinni varpar Pétur fram spurningum um þá menningu sem umlykur tónlistarflutning og leitar þar að hugmyndafræðilegu sambandi milli tónlistar og samfélags. Pétur gefur jafnframt út raftónlist undir nafninu Hjalti Kaftu, spilar á trommur með hljómsveitinni Skelkur í bringu og er annar helmingur teknófiðlutvíeykisins GEIGEN ásamt Gígju Jónsdóttur en saman hlutu þau Grímuverðlaunin 2023 fyrir tónlist ársins vegna sýningar þeirra Geigengeist en sýningin hlaut alls fimm tilnefningar til Grímunnar 2023 og þar af þrenn verðlaun.