Jazzhátíð Reykjavíkur

Jazzhátíð Reykjavíkur

jazz

Um flytjanda

Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 13. – 19. ágúst 2022. Boðið verður upp á glæsilega sjö daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu, Bandaríkjunum og Íslandi kemur fram. Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna. Dagskrá Jazzhátíðar 2022: https://reykjavikjazz.is/dagskra/ Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.

Viðburðir framundan