WICKER — MEÐ ALEXANDER SKARSGÅRD

WICKER — MEÐ ALEXANDER SKARSGÅRD

Háskólabíó, Hagatorg, 101 Reykjavík Kort

þri 29. sep 2026 19:00

RIFF býður upp á einstakt tækifæri til að sjá Norðurlandafrumsýningu Wicker, nýjustu kvikmyndar sænska stórleikarans Alexander Skarsgård, sem jafnframt er heiðursgestur hátíðarinnar í ár og tekur við Heiðursverðlaunum RIFF fyrir framúrskarandi listfengi.

🎬 Í jaðri sjávarþorps býr kona sem sækir sjóinn; ógift, daunill og stöðugt skotmark stríðni bæjarbúa. Dag einn fær hún nóg af öllu og pantar sér eiginmann ofinn úr basti. Í íhaldssömu samfélaginu vekur hinn óhefðbundni ráðahagur fljótt upp afbrýðisemi, hneykslun og uppnám, og áður en langt um líður logar þorpið stafna á milli.

Wicker er í leikstjórn Alex Huston Fischer og Eleanor Wilson og auk Skarsgård eru þau Olivia Colman, Peter Dinklage og Elizabeth Debicki í aðalhlutverkum.

Alexander Skarsgård á að baki fjölbreyttan feril, bæði heima í Svíþjóð og á alþjóðavettvangi. Hann vakti fyrst verulega athygli erlendis árið 2008 fyrir hlutverk Eric Northman í True Blood, en síðan þá hefur hann skapað sér nafn fyrir eftirminnileg hlutverk í Melancholia, The Northman og The Legend of Tarzan. Margir þekkja hann þó einna helst fyrir hlutverk sitt sem Perry Wright í Big Little Lies, sem færði honum bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun, og sem Lukas Matsson í Succession.

Skarsgård verður viðstaddur sýninguna og tekur þátt í Spurt & Svarað — einstakt tækifæri til að upplifa stórleikarann sjálfan í eigin persónu.

📍 Háskólabíó

🗓️ Þriðjudagurinn 29. september

🕖 Kl. 19:00

🎟️ Takmarkaður fjöldi miða — tryggðu þér sæti!

Flytjendur