Vinnustofa - Langar þig að læra á söngskálar?

Vinnustofa - Langar þig að læra á söngskálar?

Dass Reykjavík, Vegamótastígur 7, 101 Reykjavík Kort

sun 11. okt 2026 12:00

🎶 Langar þig að læra á söngskálar?

Vinnustofan er góður undirbúningur fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref með söngskálar úr kristal eða langar að læra betur að spila á þær.

Hvað er kennt?

Spilatækni - Hvernig er spilað á söngskálar til að skapa þægilega tóna.

Áhöld - Hver er munurinn á þeim og hvernig á að nota þau.

Fleiri hljóðfæri verða kynnt og prófuð.

Æfingar með mismunandi áhöldum og skálum.

Þarf ég að eiga skálar?

Nei, það þarf ekki að eiga skálar til að vera með. Þú færð að prófa skálar, áhöld og önnur hljóðfæri á staðnum. Ef þú átt skál, taktu hana þá endilega með.

Hvar verður vinnustofan?

Vinnustofan verður í notalegum jógasal á Granda (101 Reykjavík).

Hvernig skrái ég mig?

Sendu skilaboð hér til að skrá þig eða ef þig langar að fá meiri upplýsingar.

Verð 26.900. (Stéttarfélög styrkja oft.)

Söngskálar eru notaðar í tónheilun og slökunartímum þar sem markmiðið er að ná djúpri slökun.

Þessi vinnustofa er fyrsta skrefið í að kynnast söngskálum. Eftir það er hægt að koma á framhaldsnámskeið, þar sem verður farið ítarlega í það hvernig tímar í tónheilun fara fram.