Gervigreind er orð sem ber æ oftar á góma og er umfjöllunarefni þessa fyrsta fræðakaffis haustsins.
Er þetta fyrirbæri eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af eða einfaldlega góð viðbót sem sparar okkur vinnu og tíma?
Í erindi sínu ræðir Saga Úlfarsdóttir hvort og þá hvernig nýting gervigreindar hefur áhrif á okkar daglega líf og þá ekki síst atvinnu okkar. Hvað gerist þegar við erum komin með stafrænan vinnufélaga? Hver verða áhrif gervigreindarinnar á okkur persónulega, samfélagið, vinnustaðinn og framtíðina.
Saga Úlfarsdóttir er verkfræðingur með sérhæfingu í gagnavísindum og gervigreind. Hún hefur m.a unnið sem Head of AI hjá Travelshift og ráðgjafi í gervigreindarteymi Advania. Hún er nú með eigið ráðgjafafyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að nýta gervigreind á ábyrgan hátt.
Fræðakaffi er viðburðaröð sem fer fram á Borgarbókasafninu í Spönginni og hefur notið mikilla vinsælda.
https://borgarbokasafn.is/fraedakaffi-i-sponginni
Nánari upplýsingar:
Saga Úlfarsdóttir, verkfræðingur
saga@sasu.is | 772 3272
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6230