VAKA | Mállýskur skógarþrasta

VAKA | Mállýskur skógarþrasta

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

lau 19. sep 2026 11:30

Skógarþrestir á Íslandi hafa svæðisbundnar mállýskur og syngja því ekki allir sama lagið. Náttúrusafn Kópavogs vinnur nú að söfnun, greiningu og kortlagingu á mállýskum skógarþrasta á Íslandi. Á fyrirlestrinum verður fjallað um tungumál, söngnám og samskipti skógarþrasta. Þá verða spilaðar upptökur af helstu mállýskum Höfuðborgarsvæðsins.

Safnið hlaut Öndvegisstyrk frá Safnasjóði árið 2026 fyrir samfélagslega nálgun á rannsóknarstarfi. Þá verður lífríkið í steypufrumskógi Höfuðborgarsvæðisins rannsakað með þátttöku íbúa, ungum sem öldnum. Verkefnið byggir á fyrri rannsóknum og upptökum Hlyns Steinssonar en stefnt er að hefja víðtækari söfnun með borgarbúum vorið 2027. Verkefnið er unnið í samstarfi við samskonar verkefni í Noregi sem snýr að mállýskum skógarþrasta þar.

Hvað eru margar mismunandi mállýskur skógarþrasta á Íslandi? Eiga skógarþrestir Íslands og Noregs sameiginlega menningararfleifð?

VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. Hvort sem þú kemur til að hlusta, læra, dansa, syngja, skapa eða einfaldlega njóta samverunnar, þá gefst þér kostur á að kynnast fjölbreyttum alþýðulistum á nýjan hátt – og verða hluti af þeim. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.