Útgáfuhóf: Tengdasonur Íslands eftir Auði Övu Ólafsdóttur

Útgáfuhóf: Tengdasonur Íslands eftir Auði Övu Ólafsdóttur

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

fös 6. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Ný skáldsaga eftir Auði Övu Ólafsdóttur er komin út: Tengdasonur Íslands! Við fögnum því með stæl í Tjarnarbíói, föstudaginn 6. nóvember kl. 17. Öll hjartanlega velkomin 🦅

Auður Ava segir frá bókinni og les upp. Einnig stígur popptvíeykið Milkywhale á stokk og leikur fyrir gesti. Léttar veitingar í boði og auðvitað bækur á tilboðsverði, áritaðar af höfundi ✍️

Um bókina:

„Undanfarið hef ég verið að reyna að finna út hvað býr í blóði mínu og komist að því að það þurfti margar tilviljanir og mörg kraftaverk til að ég yrði ég.“

Í miðri síðari heimsstyrjöldinni skolar hér á land ungum vísindamanni með áhuga á skordýrum villtum plöntum, fuglum og fjallgöngum og sem talar fjölmörg tungumál. Zakarías er blóðafi sögumanns, doktorsnema í mannerfðafræði sem býr með 103 ára ömmu sinni. Þær eru Valgerður yngri og Valgerður eldri og deila sameiginlegum missi.

Tengdasonur Íslands fjallar um hver við erum, hvaðan við komum og um tímann sem er ekki jökulá sem rennur að ósi heldur aftur á bak að upptökum sínum. Og um afar langan endi ástarsögu.