Útgáfuhóf Hugar 35/2025

Útgáfuhóf Hugar 35/2025

Stúdentakjallarinn, Sæmundargata 4, 102 Reykjavík Kort

þri 3. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Hugur er kominn út og nú er tími til þess að fagna!

Úgáfufögnuður fer fram í Stúdentakjallaranum, þriðjudaginn 3. nóvember klukkan 17:00. Þemað að þessu sinni er „ástin“. Ritstjóri er Emma Björg Eyjólfsdóttir.

Á útgáfuhófinu mun Emma Björg kynna efni tímaritsins. Katrín Pálmadóttir ræðir um grein sína Þekkingarréttlæti, jafningjasambönd og barnauppeldi og Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir kynnir þýðingu sína á grein Emmu Goldman, Ást og hjónaband, en Eyja birtir auk þess grein um blóðmerarhald og siðferðilega stöðu dýra.

Annars er Hugur að venju fullur af áhugaverðu efni.

Tímaritið hefst á viðtali sem Elsa Haraldsdóttir tók við Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur þar sem þær ræða tráma, allt frá ástvinamissi til hamfarahlýnunar jarðar.

Í heild birtast fimm ritrýndar fræðigreinar að þessu sinni. Guðbjörg R. Jóhannesdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir velta fyrir sér hvernig megi hugsa heimspekilega af ástríðu og skynfinningu, en Rán Flygenring hefur myndlýst grein þeirra. Ellert Björgvin Schram fjallar um hvernig Epíkúros taldi skynjun vera mælikvarða sannleikans. Steinunn Hreinsdóttir fjallar um setningafræði, skynhrif og nánd í hugleiðingum sínum til Luce Irigaray. Einnig senda Katrín Pálmadóttir og Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir frá sér greinar, eins og fram kom að ofan.

Eyja Margrét hefur þýtt Ást og hjónaband eftir Emmu Goldman og Steinunn Hreinsdóttir texta Luce Irigaray, Ég elska til þín.

Í heimspekimolum veltir Atli Harðarson fyrir sér frelsinu og Gunnar Hersveinn ræðir dauðann og ástina.

Að lokum hefur Sigurjón Bergþór Daðason sett saman ritdóm um nýlegt lærdómsrit, Um menntunarfræði, eftir Immanuel Kant.