Útgáfuhóf: Einfætta ballerínan eftir Ingu Bjarnason
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
mið 4. nóv 2026 05:00
Bústaðu viðburðinn!Þér er boðið í útgáfufögnuð!
Í tilefni útgáfu minningabókarinnar Einfætta ballerínan eftir leikstjórann Ingu Bjarnason verður blásið til útgáfuhófs í Tjarnarbíói, við Tjarnargötu 12, miðvikudaginn 4. nóvember kl. 17:00.
Höfundur segir frá tildrögum bókarinnar og leikkonan Lilja Þórisdóttir les stuttan kafla úr verkin. Boðið verður upp á léttar veitingar og áritaðar bækur á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um bókina:
Saga Ingu Bjarnason er dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn, og víða er staldrað við á langri leið. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við lesblindu og athyglisbrest á langri ævi og kveikir magnað líf í minningum um samferðafólk liðinnar tíðar. Þar er fátt dregið undan.
Hún var borin og barnfædd við Tjarnargötu í Reykjavík en þó eins og alltaf til hliðar við það borgaralega umhverfi sem mætti henni ungri. Hún heillaðist snemma af leiklistinni og leitaði víða inngöngu í heim leikhússins. Staldraði við um hríð í tilrauna- og framúrstefnuleikhúsum álfunnar, fyrst í Danmörku, síðar Bretlandi, og heim komin lagði hún íslenskri leiklist lið sem leikstjóri um áratuga skeið.
Í minningum sínum gerir Inga Bjarnason upp við ástir og sorgir, eigin takmörk og möguleika, sigra og ósigra – og leitar loks sátta við liðna tíð.