Úr plastpoka í pennaveski

Úr plastpoka í pennaveski

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

lau 26. sep 2026 13:00

Gefðu hversdagslegum plastpoka nýtt hlutverk!
Verið velkomin í skapandi smiðju þar sem búum til litrík og einstök pennaveski úr plastpokum og öðru umframefni úr plasti.
Við kynnumst aðferð þar sem plastpokar eru bræddir saman með straujárni og þannig búum við til nýtt og sveigjanlegt efni. Hægt er að setja persónulegan svip á efnið með litum, merkjum og bókstöfum sem finna má á ýmsum umbúðum. Þegar nýja efnið er tilbúið saumum við það saman og búum til lítið veski. Tilvalið fyrir blýanta, snyrtivörur, snúrur eða hvað sem þér dettur í hug.
Við skoðum það hvernig er hægt að breyta hversdagslegum einnota hlut í nýtt efni sem býður upp á fjölbreytta möguleika til sköpunar.
- Búðu til eitthvað nýtt úr gömlu
- Hannaðu þína eigin útfærslu
- Farðu heim með tilbúið pennaveski
Smiðjan hentar unglingum og fullorðnum. Engin fyrri reynsla af saumaskap né öðru handverki er nauðsynleg og allt efni er á staðnum.
Komdu og gefðu plastpokanum annað líf!
Smiðjan fer fram á ensku.
Smiðjuna leiða Christalena Hughmanick og Diana Burkot.
Christalena Hughmanick er bandarískur textíllistamaður búsettur í Reykjavík. Hún vinnur meðal annars með bútasaum og þátttökulist. Hún kom til Íslands sem gestalistamaður árið 2020 og stendur að sameiginlegu bútasaumsverkefni undir heitinu Saumum Saman Ísland. Árið 2019 stýrði hún Freedom Quilt Project í Ungverjalandi og hefur hlotið stuðning frá Fulbright Hungary og bandaríska sendiráðinu í Búdapest. www.christalenahughmanick.com
Diana Burkot er þverfaglegur listamaður og tónlistarmaður búsettur í Reykjavík. Í listsköpun sinni fjallar hún meðal annars um pólitísk og samfélagsleg málefni. Hún er með tvær M.A.-gráður í listum og hefur sýnt og komið fram víða á alþjóðavettvangi, meðal annars í Evrópu, Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Meðal viðurkenninga sem hún hefur hlotið eru Woody Guthrie Center Award og heiðursdoktorsnafnbót í bókmenntum frá University of Kent. Hún er einnig aktívisti og hefur verið meðlimur í aktívistalistasamsteypunni Pussy Riot frá árinu 2011.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170