Uppspretta Suðurlands – Hátíð vaxtar og verðmætasköpunar
HorseDay Höllin Ingólfshvoli, Ingólfshvoli, 815, Kort
fös 6. nóv 2026 11:00
Uppspretta Suðurlands – Hátíð vaxtar og verðmætasköpunar
📍 Sviðið á Selfossi | Föstudaginn 6. nóvember 2026
Þar sem hugmyndir kvikna, tengsl myndast og tækifæri verða til!
Uppspretta Suðurlands er nýr vettvangur fyrir atvinnulíf, frumkvöðla og alla þá sem vilja taka þátt í að móta framtíð Suðurlands.
Á Uppsprettunni verður kastljósinu beint að þeim krafti, hugviti og tækifærum sem búa í landshlutanum. Með fjölbreyttri dagskrá, áhugaverðum erindum og samtali um framtíðina leiðir hátíðin saman frumkvöðla, fyrirtæki, fjárfesta, sveitarfélög og aðra áhugasama.
Markmiðið er að vekja innblástur, efla samstarf, skapa ný tengsl og sýna hvernig nýsköpun getur verið drifkraftur vaxtar og verðmætasköpunar á Suðurlandi.
DAGSKRÁ
📌 Föstudagur 6. nóvember
11:00 – Lokaviðburður Startup Landið
Teymi úr viðskiptahraðlinum Startup Landið stíga á svið og kynna spennandi verkefni sín og viðskiptahugmyndir.
Kynnir er Jói G.
13:00–15:00 – Málefni nýsköpunar á Suðurlandi
Fundarstjóri er Karen Dröfn Kjartansdóttir.
Setning Uppsprettu Suðurlands
Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS.
Ávarp nýsköpunarráðherra
Logi Már Einarsson, nýsköpunarráðherra.
Nýsköpunarstefna Suðurlands
Formleg kynning á fyrstu nýsköpunarstefnu landshlutans.
Pallborðsumræður um nýsköpunarstefnu Suðurlands
Nýsköpun í starfandi fyrirtækjum
Sesselja Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA.
Nýsköpunartækifæri í dreifðum byggðum
Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu.
Hvaða máli skiptir öflugt nýsköpunarumhverfi?
Edda Konráðsdóttir, stofnandi Iceland Innovation Week og nýsköpunarráðgjafi.
Tendrum glóð á heiðinni – nýsköpun hjá Orku náttúrunnar
Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON.
Stuðningur við sunnlenska nýsköpun og vegferð Horseday
Marta Rut Ólafsdóttir, meðstofnandi Horseday.
15:00 – Happy Hour & tengslamyndun 🥂
Við ljúkum deginum með léttu og skemmtilegu spjalli þar sem gestum gefst tækifæri til að hittast, skiptast á hugmyndum, mynda ný tengsl og jafnvel leggja grunn að næsta stóra samstarfsverkefni.
Uppspretta Suðurlands er fyrir alla sem trúa því að öflugt atvinnulíf, nýjar hugmyndir og gott samstarf séu lykillinn að framtíð Suðurlands.
Komdu, fáðu innblástur, taktu þátt í samtalinu og vertu hluti af því sem er að gerast á Suðurlandi!
📍 Sviðið á Selfossi
📅 Föstudagurinn 6. nóvember 2026
🌐 www.uppspretta.sass.is