Upplestur með Sunnu Dís

Upplestur með Sunnu Dís

Borgarbókasafnið Klébergi, Kollagrund 2, 116 Reykjavík Kort

mán 2. nóv 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið hjartanlega velkomin á notalegan upplestur á Borgarbókasafninu í Klébergi.
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrverandi bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, sér um upplesturinn.
Að þessu sinni verður lesið upp á glænýrri skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur. Um er að ræða fyrsta skáldverk höfundar en áður hefur hún gefið út þrjár bækur af öðrum toga.
Í lýsingu bókaútgáfunnar Benedikts segir:
„Varkár er verk um þrána eftir því að eignast barn og um tilveruna sem bíður ekki eftir neinum. Í stuttum, áhrifamiklum brotum fléttast saman minningar, hversdagsleg augnablik, ástin og missir í frásögn sem er í senn átakanleg og á köflum óþægilega fyndin. Hún sýnir okkur mennskuna sem birtist þegar lífið lætur ekki að stjórn.“
Auk þess að fást við skriftir er Margrét Bjarnadóttir fjöllistakona og danshöfundur.
Einnig gefst tækifæri til að spjalla og eiga notalega stund saman að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga.
Komum saman og njótum góðrar stundar á bókasafninu.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri
unnar.geir.unnarsson@reykjavik.is