UNGLIST - UNGLEIKUR

UNGLIST - UNGLEIKUR

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

sun 1. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Ungleikur 2026 verður haldinn í Tjarnarbíói sunnudaginn 1. nóvember þar sem fimm örverk eftir höfunda á aldrinum 16-25 verða frumflutt. Tvær sýningar verða á verkunum, generalprufa kl 16:00 og sýning kl 20:00. Panta þarf miða á TIX: https://tix.is/event/22577/ungleikur Ungleikur hefur verið vettvangur fyrir unga höfunda, leikstjóra, leikara og annað sviðslistafólk til að prófa sig áfram á stóra sviðinu frá árinu 2012. Viðburðurinn er hluti af Unglist sem er í nóvember á hverju ári. Á hverju ári gefst 16-25 ára tækifæri að senda inn verk sem á að vera um 20 mínútur í flutningi, þar sem 4-5 verk verða valin af valnefnd og sett upp í samstarfi við listrænt teymi Ungleiks. Verkin í ár eru eftirfarandi: Agnes og Emil eftir Smára Hannesson Ef Adam og Embla og Askur og Eva voru fyrstu mennirnir, hverjir skyldu þá vera þeir síðustu? Og skyldu þeir eins geta börn? Búningahönnuður: Svana Laura Verwinjen Danshöfundur: Eydís Ósk Sævarsdóttir Leikarar: Eydís Ósk Sævarsdóttir, Þórður Bjarni Baldvinsson, Andri Dan Hlynsson Alice flýr dauðann (AfD) eftir Ástrós Hind Rúnarsdóttur

Leikari: Kristín Þorsteinsdóttir Í Skýlinu eftir Gretti Valsson og Ólavíu Ólíversdóttur Í Skýlinu er hræðilegt leikrit. Illa leikið, illa leikstýrt, og illa skrifað leikrit. Gjöriði svo vel. Leikarar: Oddur Klöts Ólafsson, Flóki Dagsson, Lísbet Sveinsdóttir, Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, Kristinn Óli Haraldsson, Ágúst Örn Wigum Leikmynd: Emilía Bergsdóttir Þumalnögl eftir Svölu Norðdahl Emilíudóttur Verkið fjallar um stafræna heiminn í augum unglinga/barna þar sem börn eru gerð peð í youtube heiminum fyrir foreldra sína, það er að segja fórnarlömb fyrir áhorf og peninga. Hvað er raunverulegt og hvað ekki? Hversu langt myndirðu ganga til að búa til afþreyingarefni? Hvenær fellur gríman? Leikarar: María Þrastardóttir, Þrándur Ingvarsson, Gunnar Smári Sigurjónsson, Natalía Erla Arnarsdóttir, Sigríður Ragnarsdóttir Ljósahönnun: Arna Tryggvadóttir Hljóðhönnun: Arnaldur Halldórsson Leikmynda og búningahönnun: Svala Norðdahl Emilíudóttir og María Þrastarsdóttir Í dag er ég einmana, á morgun verð ég kona eftir Gretti Valsson og Maríu Veru Anítu Másdóttur Í dag er einmana á morgun verð ég kona er leikrit um ykkur, fyrir ykkur, skrifað af okkur. Þetta er leikrit um konur. Þetta er leikrit um karla. Þetta er leikrit. Þetta er leikrit um færasta klæðskerann í borginni og fjölskylduna hennar. Þetta er leikrit um ólétta karlmenn. Þetta er leikrit um Karl Lagerfeld. Þetta er gott leikrit. Leikarar: Gúa Margrét Bjarnadóttir, Grímur Smári Hallgrímsson, Sölvi Dýrfjörð, Vestur Árný, Þór Ástþórsson Leikstjórar og leikmynd: Grettir Valsson og Þorbjörg Þóroddsdóttir Ljós: Arna Tryggvadóttir Listrænir stjórnendur Ungleiks 2026 eru Halldór Ívar Halldórsson og Þorsteinn Sturla Gunnarsson. Ungleikur er einn af viðburðum Unglistar, listahátíðar ungs fólks sem er vettvangur fyrir ungt upprennandi listafólk þar sem skáldskapur og myndsköpun fá að flæða frjálst, í takti við tónlistarveislur, óheftan dans, lifandi leiklist og aðra viðburði þar sem sköpunargleðin er í öndvegi. Njóttu töfra listarinnar á ókeypis viðburðum Unglistar!