Um bækur, lestur og PISA-könnunina
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
mið 16. sep 2026 16:30
Hvað segja niðurstöður PISA-könnunarinnar okkur? Hvaða máli skiptir útgáfa barnabóka? Vilja börn yfir höfuð lesa? Hvert er hlutverk heimilanna? Þessar spurningar og margar fleiri brenna á þjóðinni eftir að niðurstöður PISA-könnunar voru kynntar og á sama tíma var kynntur samdráttur til Bókasafnssjóðs.
Við fáum til okkar Gunnar Helgason, rithöfund, Sigríði Ólafsdóttur, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Sigurð Sigurðsson, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla til að fræða okkur um útgáfu barnabóka, mikilvægi þeirra, lesskilning, rýna í niðurstöður PISA-könnunarinnar og fjalla um mikilvægi heimilanna og samstarf heimila við kennara. Að því loknu mun Anna Lea Friðriksdóttir stýra umræðum og gestir fá færi á að spyrja spurninga.
Gunnar Helgason er einn af vinsælustu barnabókahöfundum Íslands og hefur áratuga reynslu af útgáfu bóka hér á landi, þar sem markaðurinn er smár. Hann er einnig fastagestur á bókasöfnum landsins þar sem hann hvetur börn á öllum aldri til lesturs.
Sigríður Ólafsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginrannsóknasvið hennar beinast að málþroska og læsi, þróun orðaforða, lesskilnings- og ritunarfærni hjá ein-, tví- og fjöltyngdum nemendum. Hún hefur rýnt í niðurstöður PISA-kannana, fjallað um hæfniþrep og hvernig slakur lesskilningur heftir skilning á samfélagslegri umræðu.
Sigurður Sigurðsson er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, veitir foreldrum og foreldrafélögum ráðgjöf og hefur einnig unnið sem sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna hjá samtökunum og SAFT.
Anna Lea Friðriksdóttir er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda og útgefandi og bóksali hjá Sölku. Hún er íslenskufræðingur að mennt og hefur starfað við bókaútgáfu og bóksölu nær allan sinn starfsferil.
Frítt er inn og öll velkomin meðan húsrúm leyfir.