Tvöfaldur útgáfufögnuður og höfundaspjall: Bragi Ólafsson

Tvöfaldur útgáfufögnuður og höfundaspjall: Bragi Ólafsson

Skálda bókabúð, Vesturgata 10, 101 Reykjavík Kort

fim 5. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Bragi Ólafsson fagnar 40 ára útgáfuafmæli með tveimur bókum í ár: Á horni Bayswater Road og Lækjargötu – 100 og eitthvað ljóð 1986–2026 og Innanríkið: Aðfangadagar. Af þessu tilefni verður haldinn tvöfaldur útgáfufögnuður í Skáldu bókabúð fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17.

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við höfundinn um ferilinn, ljóðlistina, minningar og útúrdúra, en Kristín skrifar formála að nýja ljóðaúrvalinu. Léttar veitingar verða í boði og áritaðar bækur á sérstöku tilboðsverði.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Um bækurnar

Á horni Bayswater Road og Lækjargötu

100 og eitthvað ljóð 1986–2026

Úrval ljóða eftir Braga Ólafsson. Ljóðin eru einkum úr ljóðabókum Braga en einnig úr prósasöfnum og sérritum, auk þess sem nokkur ljóð birtast hér í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að Bragi hafi mikla sérstöðu meðal íslenskra ljóðskálda.

Innanríkið: Aðfangadagar

Höfundur lokast inni í yfirgefinni byggingu í Austurbænum en áður en það gerist nær hann að fanga ýmislegt og koma í orð. Hann veit stundum ekki hvort hlutir verða til í höfði hans eða eru aðfengnir – eða hvort munur sé á þessu tvennu. Bráðskemmtilegt sjálfstætt framhald af Innanríkinu – Alexíusi.