Töfrahús (Wonder Houses) – Stöðvarfirði
Sköpunarmiðstöðin Stöðvarfirði, Bankastræti 1, 755 Stöðvarfjörður Kort
sun 27. sep 2026 13:00
Tveggja og hálfs tíma verkstæði fyrir börn og fjölskyldur þar sem fjallað er um þemað heimili og að tilheyra. Leiðbeinendur eru brúðuleikhúss listakonurnar Tess Rivarola og Carola Mazzotti frá brúðuleikhúsinu Kunu`u Titeres (stofnað árið 2009). Ímyndum okkur töfrahús sem eru ekki kyrrstæð heldur geta ferðast. Hvernig væri þitt hús? Væri það fljúgandi hús? Eða hús sem þú berð á bakinu? Eða hús með fótum? Með því að nota stóra kassa, efni og litaðan pappír munum við smíða töfrahús og leika okkur að því að heimsækja og þekkja hvert annað.
Verkstæðið er ókeypis fyrir þáttakendur skráning slaturhusid@mulathing.is