Tilraunir og lampagerð

Tilraunir og lampagerð

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

lau 10. okt 2026 13:30

Í þessari smiðju fá börn tækifæri til að læra allt um sýrustig með spennandi tilraunum. Þau fá að gera alvöru tilraunir með því að mæla sýrustig í mismunandi efnum sem finnast í kringum okkur.

Börnin fá einnig að búa til litríkan hraunlampa.

Innblástur smiðjunnar kemur úr ævintýrinu eftir Anh Ngoc Bui um Bollu, Tótu og Magga sem nota þekkingu sína á vísindum til að skapa ótrúleg tæki. Anh verður með kynningu á bókinni sinni og svo tekur vísindasmiðjan við.

Anh Ngoc er nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún er stofnandi verkefnisins STEM fyrir framtíðina sem hefur það markmið að vekja áhuga ungmenna á tækni og raungreinum (STEM).

Smiðjan er fyrir börn frá 5-12 ára og nauðsynlegt er að skrá sig hér: https://borgarbokasafnid.enterpriseappointments.com/v2/#book/location/4/category/99/service/779/count/1/

Börnin þurfa að vera í fylgd með forráðamanni.

Ókeypis aðgangur!

Sköpun, lærdómur og ævintýri í bland!

Nánari upplýsingar veitir:

Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur

astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250