The Companion at Reykjavík Dance Festival 2026

The Companion at Reykjavík Dance Festival 2026

Gerðuberg, Kort

fös 13. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

WAUHAUS

The Companion

Föstudagur 13. nóvember 14:00 - 18:50 (sýnt á 20 mín fresti)

Laugardagur 14. nóvember 13:00 - 17:50 (sýnt á 20 mín fresti)

Gerðuberg, Gerðuberg 3-5

„Róbótar finna ekki til, en við finnum til með þeim ...“

- Kate Darling, The New Breed

The Companion er persónulegt stefnumót áhorfanda og vélhundar. Í sýningunni lokkar vélhundurinn hinn mennska þátttakanda út í gagnkvæm samskipti og leik. Upplifunin virkjar okkar meðfæddu forvitni og samlíðan með öllum verum sem hreyfa sig. Hverjum erum við tilbúin að hlýða? Erum við tilbúin að treysta og gefa okkur á vald félaga sem ekki er mennskur?

WAUHAUS er þverfaglegur listhópur í Helsinki sem var stofnaður árið 2016. Verk hópsins má staðsetja milli ólíkra listgreina og hafa þau verið sýnd í ýmiss konar rýmum, svo sem söfnum, svörtum kössum, borgarlandslagi, á stórum leikvöngum og aðalsviðum stofnanaleikhúsa. WAUHAUS eru þekkt fyrir samsköpun og fagurfræði þar sem hið hljóð- og sjónræna fléttast saman. Meðlimir WAUHAUS eru sviðshönnuðurinn Laura Haapakangas, leikstjórinn Juni Klein, sviðshönnuðurinn Samuli Laine, hljóðhönnuðurinn Jussi Matikainen, danshöfundurinn Jarkko Partanen, hljóðhönnuðurinn Heidi Soidinsalo, framleiðandinn Minttu-Maria Jäävuori og framkvæmdastjórinn Julia Hovi. Hópurinn vinnur með öðru listafólki og menningarstofnunum bæði í Finnlandi og erlendis.

Sýningin er flutt fyrir einn gest í einu og tekur 20 mínútur í flutningi. Sjá má tímaholl á miðasöluvef.

Börn á aldrinum 5-12 ára geta upplifað aðlagaða útgáfu af sýningunni í fylgd með fullorðnum aðila.

Föstudagur 13. nóvember 14:00 - 18:50 (sýnt á 20 mín fresti)

Laugardagur 14. nóvember 13:00 - 17:50 (sýnt á 20 mín fresti)

Gerðuberg, Gerðuberg 3-5

Aðgengi í Gerðubergi er almennt gott. Auðvelt er að komast inn og um hús og lyftuaðgengi er á milli hæða. Aðgengileg salerni eru á 1. hæð. Þrjú sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang á 1. hæð.

Strætóleiðir á viðburð: 3, 4, 12 & 17