Textílsögur – frásögn í textíl

Textílsögur – frásögn í textíl

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

fim 3. des 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Textílfélagið stendur fyrir samsýningunni Textílsögur í Borgarbókasafninu Spönginni. Á sýningunni segja 35 félagsmenn fjölbreyttar sögur í gegnum textíl, efni og handverk.
Verkin byggja meðal annars á minningum, reynslu, stöðum og ímyndun. Þau endurspegla fjölbreyttar aðferðir og nálganir innan textíllistar og textílhönnunar og sýna hvernig efni, form, litir og handverk geta orðið að frásögn.
Textílfélagið hefur starfað frá árinu 1974 og telur nú 118 félagsmenn. Félagar vinna á fjölbreyttan hátt að textílhönnun, myndlist eða hvoru tveggja.
Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 3. desember kl. 16–18 og eru öll hjartanlega velkomin.
Sýningin stendur til laugardagsins 30. janúar 2027 og er opin á opnunartíma safnsins:
Mánudaga–fimmtudaga kl. 10–18, föstudaga 11-18
Laugardaga kl. 11–16
Nánari upplýsingar :
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is
Þorgerður Hlöðversdóttir, formaður Textílfélagsins
textilfelagid@gmail.com