Taugafjölbreytileiki á vinnustað
fim 19. nóv 2026 09:00
Bústaðu viðburðinn!Taugafjölbreytileiki á vinnustað: Allir heilar leggja eitthvað til Taugafjölbreytileiki er ekkert tískufyrirbæri. Hann er raunveruleiki á öllum vinnustöðum. Talið er að 15–20% fólks séu taugafjölbreytt eða skynsegin, til dæmis með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Reynsla þeirra hefur áhrif á samskipti, sköpunargleði, líðan og samvinnu í teymum á hverjum einasta degi. Á þessum fyrirlestri skoðum við hvernig taugafjölbreytileiki birtist í vinnunni, hvers vegna svo margir fara óséðir og hvað stjórnendur, mannauðsfólk og samstarfsfólk geta gert til að allir heilar fái að blómstra. Þú færð með þér skýrar útskýringar og einföld, hagnýt verkfæri sem þú getur byrjað að nota strax. Fyrirlesturinn fer fram á ensku, en spurningar og umræður mega gjarnan vera á íslensku.
Um Sönnu Sanna Arthur er ICF-þjálfaður markþjálfi með sérhæfingu í taugafjölbreytileika. Hún er líka fræðari og stofnandi Speshal Coaching í Reykjavík. Sanna er á einhverfurófi og með ADHD. Eins og margar konur greindist hún seint. Í starfi sínu að inngildingu skynsegins fólks nýtir hún bæði eigin reynslu og faglega þekkingu. Með bakgrunn í verkefnastjórnun, teymisstjórnun og fjölmenningarlegum samskiptum aðstoðar hún fyrirtæki og stofnanir við að byggja upp vinnustaði þar sem allir heilar geta blómstrað. Nálgun hennar byggir á styrkleikum og vísindalegri þekkingu og hefur sálrænt öryggi að grunni. Hún býður upp á vinnustofur og markþjálfun á ensku, íslensku og þýsku.