Verið velkomin í smiðju undir handleiðslu Vilborgar Bjarkadóttur.
Í þessari skúlptúrsmiðju ætlum við að leira skrímsli og nota alvöru gervitennur! Það er ekkert vit í skrímslum sem geta hvorki bitið né klórað. Hver verður þá hræddur? Enginn - ekki einu sinni þau sjálf!
Bíddu nú við … við ætlum að búa til okkar eigin skrímsli!
En hvernig gerum við skrímsli?
Í fyrsta lagi verðum við að koma á óvart.
Í öðru lagi ætlum við að verða alvöru skrímslatemjarar!
Sum skrímsli verða risastór, önnur á stærð við þumal. Sum verða með klær, horn, feld og jafnvel með tennur bæði í efri og neðri góm. Önnur verða kannski bara með tvær tennur - eða jafnvel eina!
Allt er í boði!
Ekki láta þér bregða þó þú sjáir vampíruskrímsli, drekaskrímsli eða loðskrímsli. Við þurfum samt ekkert að vera rosalega hrædd, því við erum sannkallaðir skrímslatemjarar!
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411 6170
Tannaskrímsli
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau 7. nóv 2026 11:00