Spennandi vísindasmiðja fyrir börn!
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
lau 19. sep 2026 13:30
Í þessari smiðju fá börn tækifæri til að hanna ,,blöðrufiska" eða að búa til litríkan hraunlampa í spennandi vísindasmiðju.
Innblásturinn kemur úr ævintýrinu eftir Anh Ngoc Bui um Bollu, Tótu og Magga sem nota þekkingu sína á vísindum til að skapa ótrúleg tæki. Anh verður með kynningu á bókinni sinni og svo tekur vísindasmiðjan við.
Anh Ngoc er nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún er stofnandi verkefnisins STEM fyrir framtíðina sem hefur það markmið að vekja áhuga ungmenna á tækni og raungreinum (STEM).
Smiðjan er fyrir börn frá 5-12 ára og nauðsynlegt er að skrá sig hér:
https://borgarbokasafnid.enterpriseappointments.com/v2/#book/location/4/category/99/service/778/count/1/
Börnin þurfa að vera í fylgd með forráðamanni.
Ókeypis aðgangur!
Sköpun, lærdómur og ævintýri í bland!
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250