Skoðum og spjöllum

Skoðum og spjöllum

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

lau 10. okt 2026 11:30

🎨 Langar þig að rölta um miðborg Reykjavíkur og skoða skemmtilegar sýningar á fjölbreyttum menningarstofnunum á meðan þú æfir þig að spjalla á íslensku?

💬 Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra! Öll velkomin, líka byrjendur.

☕ Við hittumst á Torginu, 1.hæðinni á Borgarbókasafninu Grófinni (í miðbænum), fáum okkur kaffi/te og förum yfir orð sem nýtast í heimsókn dagsins, áður en við röltum saman á sýninguna og kynnumst borginni betur.

Leiðsagnirnar fara fram á íslensku en reyndir íslenskukennarar fylgja hópnum og aðstoða ef á þarf að halda.

Þátttaka er ókeypis og engin skráning.

👉 Skoðum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim, þar sem boðið er upp á fjölbreyttar og skemmtilegar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara. Dagskrá Spjöllum með hreim má finna hér: https://borgarbokasafn.is/spjollum-med-hreim

Nánari upplýsingar veitir:

Hildur Björgvinsdóttir

Verkefnastjóri viðburða og fræðslu

hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is