Skiptumst á grímubúningum

Skiptumst á grímubúningum

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fös 23. okt 2026 10:00

Verið velkomin á skiptimarkað þar sem við skiptumst á grímubúningum

Við bjóðum uppá vettvang fyrir börn að skipast á grímubúningum á safninu. Hrekkjavakan er handan við hornið og því tilvalið að koma með „gamla“ grímubúninga og skipta út fyrir „nýja“

Öllum býðst að koma með búninga á markaðinn og velja grímubúninga sem þeim líst vel á til að taka með heim.

Inná Borgarbókasafninu í Gerðubergi verður sett upp fataslá þar sem hægt er að hengja upp á. Það er velkomið að taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má gefa búninga án þess að taka aðra af slánni.