Skiptumst á grímubúningum

Skiptumst á grímubúningum

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

fim 22. okt 2026 08:00

Verið velkomin á skiptimarkað þar sem við skiptumst á grímubúningum
Við bjóðum uppá vettvang fyrir börn að skipast á grímubúningum á safninu. Hrekkjavakan er handan við hornið og því tilvalið að koma með „gamla“ grímubúninga og skipta út fyrir „nýja“
Öllum býðst að koma með búninga á markaðinn og velja grímubúninga sem þeim líst vel á til að taka með heim.
Inná Borgarbókasafninu í Gerðubergi verður sett upp fataslá þar sem hægt er að hengja upp á. Það er velkomið að taka sér búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má gefa búninga án þess að taka aðra af slánni. 
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411 6170