Sjalagleði með Textílbarnum
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau 3. okt 2026 14:30
Ætlar þú að taka þátt í sjalasamprjóni Stephen West?
Samprjónið hefst formlega 1.október og virkar þannig að í hverri viku, í 4 vikur, er sleppt út vísbendingu, eða partur af prjónauppskrift. Þátttakendur vita því ekki hvernig lokaútkoman verður og er einstaklega skemmtilegt að fylgjast með hinum ýmsu litasamsetningum út um allan heim eftir því sem verkefninu vindur áfram.
Til að fanga lita- og sköpunargleðina bjóðum við til sjalagleði í Gerðubergi með Textílbarnum þar sem áherslan er á endurnýtingu og garnafganga.
Textíl Barinn er hönnunar stúdíó þar sem dúóið Hildigunnur og Hrafnhildur standa vaktina. Þær sérhæfa sig í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf með endurvinnslu, endurhönnun og gera þannig textílinn aðlaðandi og aðgengilegri.
Samprjónssjalið er einmitt í 8 litum í ár og henta afgangar því fullkomlega í verkefnið.
Við hvetjum alla prjónara sem ætla að vera með í samprjóninu í ár að mæta og eiga saman sprúðlandi prjónastund.
Hér er hægt að kynna sér samprjónssjal Stephen West:
https://www.stephenandpenelope.com/pages/westknits-mystery-knit-along
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.