Sirkussmiðja
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort
lau 14. nóv 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Hringleikur opnar dótakassann sinn með alls kyns sirkusáhöldum í forsal Salarins og býður gestum og gangandi að koma og prófa undir handleiðslu reynds sirkuslistafólks. Um opna smiðju er að ræða þar sem stoppa má við í lengri eða skemmri tíma. Stór og smá geta leikið sér saman og lært að djöggla, snúa diskum eða ná jafnvægi á veltibretti. Öll velkomin!
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin meðan húsrúm leyfir.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.