Silva Þórðardóttir - Útgáfutónleikar

Silva Þórðardóttir - Útgáfutónleikar

Vinnustofa Kjarval | Fantasíusalur, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Kort

fös 13. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Önnur sólóplata Silvu Þórðardóttur, Þá uxu blóm, kemur út í nóvember. Af því tilefni mun hún, ásamt hljómsveit, halda upp á útgáfuna með flutningi á plötunni en nokkrir af hennar uppáhalds djass standördum fá að fljóta með. Tónleikarnir verða á Fantasíu, Vinnustofu Kjarvals, föstudagskvöldið 13. nóvember klukkan 20:00.

Hljómsveitina skipa;

Tómas Jónsson - píanó og hammond

Þorgrímur Jónsson - kontrabassi

Haukur Gröndal - klarinett og þverflauta

Matthías Hemstock - trommur

Anna Maggý 📸

Korkimon ✏️