Silfurbjöllurnar
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 20:00
Íslensk og norsk tónlist - ný og gömul, ásamt verkum sígildra meistara eins og Arutiunian og Morricone! Málmblásturs kvintettinn Silfurbjöllurnar býður upp á fjölbreytta, lifandi og skemmtilega tónleika 12. nóvember kl. 20 í Hannesarholti.
Hópurinn leggur áherslu á að frumflytja ný verk eftir íslensk tónskáld, og mun frumflytja Hnúfubak, nýtt verk eftir Ingibjörgu Azimu á tónleikunum.
Silfurbjöllurnar voru stofnaðar í 2022 og hafa komin fram við ýmis tækifæri, meðal annars í Hörpu, á vegum Reykjavíkurborgar og sem hluti af tónleikaröðunum 15:15 og Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Kvintettinn er skipaður þeim Hönnuh O’Connor og Øyvind Lapin Larsen á trompeta, Önnu Sigurbjörnsdóttur á horn, Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur á básúnu og Ingibjörgu Azimu á bassabásúnu.