Sígildir sunnudagar - Þagnarómur
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun 8. nóv 2026 16:00
Hvernig má fanga þögnina? Hefur hún áferð eða hljóm? Rúmar hún andartak - eða einnig það sem kemur á undan og eftir? Hvernig má túlka hana í tónlist?
Þagnarómur er yfirskrift tónleika KIMA ensemble sem fram fara þann 8. nóvember næstkomandi kl. 16:00 í Norðurljósum, sem hluti af tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar.
Efnisskráin hverfist um hinar ýmsu birtingarmyndir þagnarinnar í tungumáli, menningu og sögu, en öll verkin eru samin sérstaklega fyrir hópinn. Þar munu þau m.a. frumflytja tvö ný verk eftir tónskáldin Guðmund Stein Gunnarsson og Ayu Yoshida - sem hvort um sig sækir innblástur í japanska ljóðlist og heimspeki, þar sem þögnin - hið ósagða - hefur mikið vægi.
UM VERKIN
„Tamayura” er yfirskriftin á nýju verki eftir japanska tónskáldið Aya Yoshida, sem samið er fyrir tilefnið. Verkið byggir á japönsku ástarljóði frá 8. öld, þar sem hugtakið „tamayura“ er miðlægt; hugtakið merkir hverfult andartak eða hljóð, sem er horfið í einni svipan - nánast um leið og það birtist. Það lýsir hinu fínlega hljóði af perlum að snertast - en getur einnig átt við þær torræðu tilfinningar sem vakna í svipulu andartaki, en staldra þó við og erfitt er að henda reiður á. Aya notar eiginleika einstakra málhljóða til að skapa áhrif, og leikur sér sérstaklega að hinu séríslenska málbrigði „að tala á innsoginu“. Þá mun slagverksleikari KIMA, Katerina, einnig leika hefðbundnum japönskum burstum á hljóðfæri sín.
Segja má að þögnin sé grunnstef í verkum danska tónskáldsins Jeppe Ernst. Flest verka hans eru hljóðlaus og mætti einna helst líkja við dansverk eða gjörning, en byggja þó á lögmálum tónsköpunar. Þögnin í verkum hans verður oft spennuþrungin, og geta hreyfingarnar virst vélrænar - þrátt fyrir að vera sammannlegar. Í verkinu „Bønnebog” - „Bænabók”, standa flytjendur hlið við hlið og hreyfa eingöngu höfuð og andlit. Snöggar hreyfingar og höfuðrykkingar mynda þannig téða spennu og vekja hugrenningatengsl við ýmis samskiptamynstur og alla þá tjáningu sem fram fer án orða í daglegu lífi. Einnig gæti verkið minnt á trúarlega athöfn, þögn bænahússins.
Verkið „Facing the Forests“ eftir Ísraelska tónskáldið Udi Perlman var frumflutt af KIMA undir lok árs 2025, en heyrist nú í fyrsta sinn á Íslandi. Titill verksins vísar í samnefnda skáldsögu rithöfundarins A.B. Yehoshua, og segir frá ungum ísraelskum sagnfræðingi sem starfar sem skógarvörður, en uppgötvar að skóglendið sem hann stendur vörð um er reist á rústum palestínsks þorps. Verk Perlmans endurspeglar afneitun ísraelskra stjórnvalda á sögu Palestínumanna, sem einkennist af sláandi þögn.
Guðmundur Steinn Gunnarsson byggir sitt verk „Upprunalegt andlit” á japönsku ljóði frá 13. öld eftir Dogen Zenji í þýðingu Árna Björns Árnasonar. Þar felur hann hljóðfæraleikurum að beita öllum líkamanum og leika með höndum, fótum og munni. Þetta endurspeglar jafnframt hinar fimm „Skandhas“ - eða skynflokka - sem samkvæmt búddisma eru undirstöður sjálfsins.
Tónleikarnir eru studdir af Styrktarsjóð Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.
Tónleikarnir eru um 70 mínútur, með hléi.
Miðaverð:
3.900 kr. almennt miðaverð
2.500 kr. ellilífeyrisþegar, námsmenn og öryrkjar