Séra Sólveig Franklínsdóttir sett inn í embætti æskulýðsprests
Grensáskirkja, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík Kort
sun 20. sep 2026 11:00
Séra Sólveig Franklínsdóttir verður sett inn í embætti æskulýðsprests Grensássóknar í Fossvogsprestakalli, við hátíðlega athöfn í Grensáskirkju, sunnudaginn 20. september nk. kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur organista.
Skólahljómsveit Austurbæjar spilar undir stjórn Snorra Heimissonar.
Séra Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum og leiðtogum úr æskulýðsstarfinu. Séra Guðbjörg Jóhannesdóttir prófastur annast um innsetninguna. Séra Sólveig Franklínsdóttir flytur hugvekju.
Messukaffi að lokinni messu í boði sóknarnefndar.
Verið hjartanlega velkomin til helgihalds og innsetningar í Grensáskirkju.