Saumum saman: Jólaskraut
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau 5. des 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Komdu þér í hátíðarskap í notalegri og byrjendavænni smiðju í bútasaumi og handsaumi. Í þessari smiðju fá þátttakendur 12 ára og eldri, tækifæri til þess að læra grunnaðferðir við handsaum með því að setja saman efnisbúta og búa til hátíðlegt skraut á jólatréð úr notuðum textíl og öðru endurunnu efni.
Engin krafa er um reynslu af saumaskap eða bútasaumi. Njótum þess að skapa, sauma og deila saman stund í desember. Við skoðum einfaldar aðferðir til þess að endurnýta efnisbúta og skapa eitthvað nýtt og hátíðlegt. Velkomið að taka með þér gömul föt eða annan textíl til að nota. Öll fara heim með að minnsta kosti eina handgerða skreytingu sem hægt er að hengja upp yfir hátíðirnar eða gefa sem fallega og persónulega gjöf.
Smiðjan er tilvalin fyrir fjölskyldur. Allt efni er á staðnum.
Smiðjuna leiðir Christalena Hughmanick. Smiðjan fer fram á ensku.
Christalena Hughmanick er bandarískur textíllistamaður búsettur í Reykjavík. Hún vinnur meðal annars með bútasaum og þátttökulist. Hún kom til Íslands sem gestalistamaður árið 2020 og stendur að sameiginlegu bútasaumsverkefni undir heitinu Saumum Saman Ísland. Árið 2019 stýrði hún Freedom Quilt Project í Ungverjalandi og hefur hlotið stuðning frá Fulbright Hungary og bandaríska sendiráðinu í Búdapest.
www.christalenahughmanick.com
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.