Sátan 2027
Loppu Sjoppan, Nesvegur 13, 340 Stykkishólmur Kort
fim 3. jún 2027 11:00
Vertu með á Sátunni 2027; þriggja daga metalveislu í hjarta Stykkishólms, einum fallegasta bæ landsins!
Rjóminn af íslenskum metal mun koma fram ásamt mögnuðum erlendum hljómsveitum. Á Sátunni eru allir velkomnir í hringinn, hér snýst allt um fjölbreytileika, virðingu og brjálaða stemningu. Ein vinalegasta metalhátíð sem þú getur fundið.
Búðu þig undir tryllta tónleika, öðruvísi uppákomur eins og metal barsvar og metal bingó, og einstakt samfélag metalunnenda sem kunna að skemmta sér. Hátíðin er skipulögð af metalhausum, fyrir metalhausa.
Það er 18 ára aldurstakmark en allir krakkar eru velkomnir með foreldrum sínum og 12 ára og yngri frá frítt inn!
Hægt að fá bæði helgar og dagpassa!