Sagan um Ísfólkið – stórvirki sjoppubókmenntanna
Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
mið 21. okt 2026 17:00
Sagan um Ísfólkið hefur notið fádæma vinsælda á Íslandi. Bækurnar komu fyrst út á árunum 1982-1989 og seldist hver bók að meðaltali í 7-9000 eintökum.
Þegar búið var að lesa fyrstu útgáfuna í tætlur voru bækurnar endurútgefnar í kringum 2008 og nú eru þær í stöðugu útláni á bókasöfnum og vinsælar á hljóðbókaveitum.
Ísfólkið hefur ekki talist bókmenntalegt stórvirki og var kallað „sjoppubókmenntir“ því bókaflokkurinn þótti ekki nógu merkilegur til að taka pláss í bókabúðum. En hvað er það sem gerir Ísfólkið svona heillandi? Og hver ákveður hvaða bækur eru góðar og hverjar ekki?
Brynhildur Björnsdóttir, bókmenntafræðingur með meiru, skrifaði BA ritgerð sína um Ísfólkið og gæðahugtakið í bókmenntum árið 1993. Hún endurlas allar bækurnar um daginn og komst að ýmsum niðurstöðum.