SÆGRÆNA SÓLGYLLTA STRÁSTRÁ
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort
lau 10. okt 2026 14:00
Verið velkomin í notalega hugvekju sem Edda Kristín Sigurjónsdóttir leiðir þar sem strá og grös eru í forgrunni. Léttar veitingar og jurtate verða á boðstólnum. Öll velkomin.
Edda er áhugamanneskja um töfrandi heim plönturíkisins og sækir innblástur í umhverfi sitt og samferðafólk. Hún hefur unnið í myndlistinni og menningarlífinu í allmörg ár og lærði einnig garðyrkjufræði með áherslu á lífræna ræktun. Hún starfar sem blaðamaður á Bændablaðinu og heldur úti menningarmiðlinum Edda og Greipur mæla með
„Strá eru blómberandi stilkar grasa og stara. Viðförul, þrautseig, látlaus, gjöful og falleg en fá oft litla athygli. „Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá“, segir í þjóðsöng Íslands. Eilitla stund ætlum við að skoða heiminn út frá stráum. Tala um þau, hvernig þeim er lýst, skoða þau, teikna þau, kannski borða þau og syngja um þau, þó ekki þjóðsönginn.
Blástrýgresi, hrossanál, silkibygg, vallarfoxgras, melgresi, bygg, snarrótarpuntur og hvað þau nú heita öll, með tvíblóma smáöx, kafloðnar blómagnir, stuttar týtur, fimmtauga og fjólubláa frjóhnappa.
Við beinum sjónum og vitum að þessari stóru fjölskyldu sem grösin eru. Veltum vöngum yfir því sem stendur okkur nærri, strá á milli gangstéttahellna, úti í garði, í borgarlandinu, á akrinum, útlöndum og þeim sem rata ofan í mann og mús. Hittumst og í sameiningu getum við kannski skerpt skilningarvitin eilítið.“
Viðburðurinn fer fram á íslensku.