Reykjavík Early Music Festival 2027: Hátíðarpassi
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
þri 23. mar 2027 19:00
Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er árlega í dymbilviku í Hörpu. Tryggðu þér hátíðarpassa á sérstöku tilboðsverði frá 10. til 20. nóvember 2026.
Hátíðin fór fyrst fram í mars árið 2024 og hefur hlotið frábærar viðtökur. Hún hefur sérstöðu í íslensku tónlistarlífi þar sem hún er eina alþjóðlega tónlistarhátíðin á Íslandi sem er helguð upprunaflutningi barokktónlistar. Hátíðin er einstakur vettvangur fyrir samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa.
Markmið Reykjavík Early Music Festival er að auðga tónlistarlíf og menningu í Reykjavík og skapa alþjóðlegan vettvang fyrir flutning tónlistar fyrri alda. Einnig hefur hún að markmiði að veita tónlistarunnendum andlega næringu óháð efnahag og að skapa tækifæri fyrir unga tónlistarmenn að sækja sér þekkingu og innblástur.