Reykjavík Dance Festival | Opnunarhóf- finum fiðringinn saman!
Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort
mið 11. nóv 2026 16:30
Bústaðu viðburðinn!Það er alveg sérstök tilfinning þegar fólk safnast saman rétt áður en eitthvað svakalegt gerist. Þú hittir fólk, horfir í augun á einhverjum, færð þér drykk og finnur fiðringinn í loftinu. Svolítið eins og að horfa á góða hryllingsmynd í faðmi fjölskyldunnar.
Við opnum RDF 2026 í Listasafni Reykjavíkur með stuttum ávörpum og lyftum glösum fyrir dansinum, listafólkinu og öllu því sem bíður okkar næstu fimm daga.
Svo dimmum við ljósin.
Kvöldið heldur áfram í sérútbúnu sýningarrými RDF í Portinu. Þar fáum við að upplifa Black eftir Oulouy. Krump, Coupé-Décalé, Ndomboló og Afrohouse koma saman í sýningu sem hefur farið sigurför um dansheiminn og kemur nú loksins til Reykjavíkur.
Opnunarmóttakan er ókeypis og öll eru velkomin. Miðar á Black fást á Tix.is.
Komdu og finndu fiðringinn á RDF 2026!