Reykjavík Dance Festival 2026 - VIÐ FINNUM ÞAÐ ÖLL…

Reykjavík Dance Festival 2026 - VIÐ FINNUM ÞAÐ ÖLL…

Reykjavík, Iceland, Nauthólsvegur, 102 Reykjavík Kort

mið 11. nóv 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

✨ REYKJAVÍK DANCE FESTIVAL 2026 ✨ VIÐ FINNUM ÞAÐ ÖLL… Reykjavík Dance Festival verður haldin dagana 11.–15. nóvember og fyllir borgina af dansi og sviðslistum. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem einn mest spennandi og framsæknasti viðburður sviðslistasenunnar á Íslandi. „Þessir róbótar finna ekki til, en við finnum til með þeim.“ Kate Darling Á Reykjavík Dance Festival í ár verður ykkur boðið einum inn í herbergi þar sem þið hittið fyrir vélhund. Við vitum að vélar finna ekki til. En við getum ekki annað en fundið til með þeim. Við erum tilfinningavélar. Í verkinu CLAP & SLAP takast þau Agnietė Lisičkinaitė frá Litháen og Igor Shugaleev frá Belarús á við sekt og ábyrgð í skugga árásarstríðs Rússa í Úkraínu. Þau slá eigin líkama þar til húðin roðnar. Við erum beðin um að klappa í takt. Þau slá. Við klöppum. Höggin dynja ekki á líkama okkar. En við finnum fyrir þeim á húðinni. Í EPICLOGUE mætast tveir líkamar sem gefa sig hvor öðrum á vald. Í krafti trausts fikra þeir sig nær því sem er líkamlega og tilfinningalega ómögulegt. Hvernig upplifum við okkar eigin þrá eftir nánd þegar við verðum vitni að svo innilegum athöfnum? Hreyfing skapar tilfinningar. Tilfinningar hreyfa við okkur. Við hreyfum hvert við öðru. Hvað sem það er sem þú finnur fyrir – taktu það með þér. Við finnum ekki öll fyrir því sama. En við finnum öll fyrir einhverju. VIÐ FINNUM ÖLL FYRIR ÞVÍ. ATH: Danskort koma í sölu innan skamms. Veldu 4 eða 8 sýningar í þitt RDF Danskort og fáðu miðan á lægra verði. Samhliða hátíðinni fer fram Iceland Moves 2026, sem setur íslenskan dans og danshöfundaverk í brennidepil og tengir kraftmikið íslenskt danssamfélag við alþjóðlegt tengslanet Reykjavík Dance Festival. Iceland Moves 2026 er samstarfsverkefni Performing Arts Centre Iceland, Reykjavík Dance Festival, Íslenska dansflokksins og Dansverkstæðisins, í samstarfi við Íslandsstofu. https://www.reykjavikdancefestival.com/

RDF 2026 Hátíðardagskrá

Miðvikudagur 11. nóvember

OPNUNARHÓF - FINNUM FIÐRINGINN SAMAN!

16:30 - 17:00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Black - Oulouy 17:00 - 17:30 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Sérstæðan - Rósa Ómarsdóttir 19:00 - 20:15 Tjarnarbíó Papa - Halla Ólafsdóttir & Sindri Runudde 21:00 - 22:15 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús - Fimmtudagur 12. nóvember

Þú átt leik - Aude Busson (Off venue) 16:00 - 17:00 Ásmundarsalur Balfour Reparations - Farah Saleh 17:00 - 17:40 Tjarnarsalur – Ráðhús Reykjavíkur CLAP & SLAP - BE COMPANY 19:30 - 20:15 Tjarnarbíó Hrygg - Bára Sigfúsdóttir 21:00 - 22:00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Brothætt: Ritual III - Fyrirgefningin - Fagurferðir: Steinunn Knúts-Önnudóttir í samstarfi við Völu Höskuldsdóttur (Off venue) 21:00 - 22:15 & 23:00 - 00:15 Dómkirkjan - Föstudagur 13. nóvember

The Companion - WAUHAUS 14:00 - 18:50 (sýnt á 20 mín fresti

) Gerðuberg Ösku(fj**dans)buska / Cinde(f***ing)rella - Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir & Saga Kjerúlf Sigurðardóttir 18:00 - 19:00 Kjallarinn – Þjóðleikhúsið Flóðreka - Aðalheiður Halldórsdóttir & Jónsi + Íslenski Dansflokkurinn 20:00 - 21:00 Nýja svið, Borgarleikhúsið Fólk - Milkywhale & Kvæðakórinn 21:30 - 22:30 Tjarnarbíó - Laugardagur 14. nóvember

Tilfinningaskólinn / School of Emotions 11:00 - 19:30 Listasafn Reykjavíkur - Fjölnotasalur The Companion - WAUHAUS 13:00 - 17:50 (sýnt á 20 mín fresti

) Gerðuberg Baby Rave 14:00 - 15:00 Hörpuhorn, Harpa no lemons no melon - Inga Huld Hákonardóttir & Yann Leguay – Caravan Production 15:00 - 16:00 Tjarnarbíó Straumur - Hiroki Ichinose, Leevi Mettinen, Sarah Aviaja Hammeken, Sóley Ólafsdóttir & Íslenski Dansflokkurinn 17:00 - 19:00 Nýja svið, Borgarleikhúsið Ösku(fj**dans)buska / Cinde(f***ing)rella - Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir & Saga Kjerúlf Sigurðardóttir 18:00 - 19:00 Kjallarinn – Þjóðleikhúsið Decolonial (Hi)stories #Parallel Portraits - Betty Tchomanga 19:30 - 22:00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús MYRKRAEYJA – Danspartý, performansar & DJ 22:30 - 03:00 Austurbæjarbíó - Sunnudagur 15. nóvember

Konukroppar - Gleym-mér-ei - Snædís Lilja Ingadóttir & Sigríður Ásta Olgeirsdóttir 12:00 - 12:50 Sundhöll Hafnarfjarða The Art Of Holding Space - R.A.A.F. danst (Off-venue) 12:00–13:00 Dansverkstæðið A Dog Show / Hundasýning - WAUHAUS 14:00 - 15:00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Living In Color / In Living Color - Sonya Lindfors 15:30 - 16:00 Norræna Húsið Heyrðu mig - Sveinbjörg Þórhallsdóttir 17:00 - 18:00 Tjarnarbíó Notes on Spitting - Daniel Blanga Gubbay 18:15 - 19:30 Kjallarinn – Þjóðleikhúsið EPICLOGUE - Køteren og Terrieren 20:00 - 21:15 Kassinn – Þjóðleikhúsið