RDF - Notes on Spitting
Þjóðleikhúsið | Kjallarinn, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Kort
sun 15. nóv 2026 18:00
Notes on Spitting er sviðsettur upplestur sem byggður er á texta eftir Dani Blanga Gubbay. Í verkinu er rýnt í tengsl dans og kóreógrafíu, kynlífs og kláms. Í textanum blandast fræði og skáldskapur saman en hann spannar sólarhringslangt ferðalag gegnum heima dansins. Við sögu koma The Volcano Lover, skáldsaga Susan Sontag, sem og verk eftir Mariu Hassabi og Alex Baczyński-Jenkins. Í þessum sviðsetta upplestri umbreyta rödd, hljóð og munnvatnsvekjandi kokteill textanum í lifandi stefnumót þar sem spurt er hvort hugsa megi um dans sem ætandi kraft – eins og munnvatn sem hrækt er á blett til að leysa hann upp – kraft er fær um að mýkja skilning okkar að einhverju leyti.
Daniel Blanga Gubbay er rithöfundur og sviðslistamaður. Hann var einn stjórnenda Kunstenfestivaldesarts í Brussel (2018–2026). Hann hefur starfað við kennslu og sem listrænn stjórnandi, m.a. yfir sviðslistadagskrá 36. São Paulo-tvíræingsins (2025). Hann er með doktorsgráðu frá Palermo-háskóla og er einn stofnenda Celador, tilraunarýmis fyrir tungumál í Brussel, og situr í listráði Beirut Art Center. Í skrifum sínum tvinnar hann saman fræði og skáldskap. Stundum skrifar hann undir nafninu Dani – persónulegu næturnafni – og fetar þannig í fótspor listafólks og höfunda sem nota styttingu á nafni sínu til að gefa til kynna innileika, tilraunamennsku og a shift in tone. Þannig verður undirskriftin rödd fremur en merkimiði. Notes on Spitting mun koma út í bókarformi snemma árs 2027.
Skrifað og lesið af Dani Blanga Gubbay
Birtist upphaflega í Mousse Magazine (tölubl. 91–94).
Í þessum sviðsetta upplestri birtast teikningar eftir Alinu Popa (1982–2019), skírskotað er til verka eftir Mariu Hassabi, noru chipaumire og Alex Baczyński-Jenkins, hljóð eftir Krzysztof Bagiński er leikið og einnig birtast svipmyndir úr Querelle (1982), kvikmynd Rainers Werners Fassbinder.
Textinn var upphaflega pantaður og gefinn út hjá Mousse Magazine
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/