Ráðstefna um stafrænt aðgengi:  WAD: Iceland onboard – from requirements to reality

Ráðstefna um stafrænt aðgengi: WAD: Iceland onboard – from requirements to reality

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

fim 1. okt 2026 08:30

Þann 1. október 2026 fer fram alþjóðleg ráðstefna í Hörpu í Reykjavík undir yfirskriftinni „WAD: Iceland onboard – from requirements to reality“. Ráðstefnan er haldin af IAAP Nordic í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök og er styrkt af Ský og EBU. Hún fjallar um innleiðingu Evróputilskipunar um stafrænt aðgengi (Web Accessibility Directive) í íslenskri löggjöf og framkvæmd.

Markmið ráðstefnunnar er að tengja saman stefnumótun, framkvæmd og raunverulega notkun stafrænnar þjónustu með aðgengi að leiðarljósi. Á dagskrá verða erindi frá alþjóðlegum sérfræðingum á borð við Lainey Feingold, Susanna Laurin, Katrin Langensiepen, Joseph Seychell, Mikael Becker, Jakob Rosin og Rósa Maríu Hjörvar, sem fjalla um aðgengismál út frá ólíkum sjónarhornum, þar á meðal stefnumótun, eftirliti og reynslu notenda með fötlun.

Eftir hádegi verður lögð áhersla á hagnýta nálgun þar sem þátttakendur kynnast reynslu notenda í gagnvirkum stöðvum, auk vinnustofa þar sem farið verður yfir hvernig uppfylla megi aðgengiskröfur í mismunandi hlutverkum, svo sem í hönnun, þróun, innkaupum og efnisgerð.

Viðburðurinn er bæði ætlaður sérfræðingum og öllum sem koma að mótun og framkvæmd stafrænnar þjónustu. Hluti dagskrár er opinn öllum þátttakendum og boðið er upp á bæði staðbundna þátttöku í Hörpu og rafræna þátttöku.

Skráning og nánari upplýsingar má finna hér!

https://iaap-nordic.org/en/whats-up/#1-oct

Eftirfarandi sérfræðingar og fyrirlesarar taka þátt í ráðstefnunni: