Púðlusafnið

Púðlusafnið

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

lau 21. nóv 2026 20:30

Bústaðu viðburðinn!

“Einu sinni var ég barnabarn ömmu minnar. En svo var ég skyndilega eitthvað allt annað.”

Púðlusafnið er nýtt sviðsverk innblásið af bókinni Night Bitch eftir Rachel Yoder og óvenjulegum arfi sem féll höfundi í skaut; safni af mörg hundruð postulíns púðlustyttum ömmu hennar. Safnið hefur legið ósnert í kössum en verður nú tekið upp og fær tilgang á ný í verki sem fléttar saman heimildaleikhúsi og fantasíuheimi næturtíkarinnar.

Flytjendur taka hamskiptum og fara hamförum í draumkenndu verki um mörkin milli hins mannlega og dýrslega, áráttu og ástríðu, minninga og uppspuna.

Útkoman er súrrealísk og persónuleg sýning sem er samin og flutt af systrunum Olgu Sonju og Salóme Sól.


Höfundar og flytjendur: Olga Sonja Thorarensen, Salóme Sól Norðkvist

Leikstjórn: Kara Hergils Valdimarsdóttir og Andrea Elín Vilhjálmsdóttir

Dramatúrg: Ásrún Magnúsdóttir

Tónlist: Ragnheiður Erla

Leikmynd og búningar: Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir og Alexía Rós Gylfadóttir

Lýsing: Cristina Agueda


Styrkt af Sviðslistasjóði og launasjóði listamanna