Pláneta - Skynjunarleikstund
Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgata 1, 220 Hafnarfjörður Kort
þri 23. feb 2027 14:00
Pláneta mætir í Bókasafn Hafnarfjarðar! Börnin geta tekið þátt í örvandi og skemmtilegri virkni með alls kyns áferðum, lyktum og litríkum efnivið sem er sérvalinn til að kveikja forvitni og efla sköpun. Skynjunarleiksmiðjur Plánetu eru til þess fallnar að allir fái að kynnast nýjum skynjunarupplifunum á skemmtilegan og gagnvirkan máta.
Leiksmiðjurnar henta sérstaklega vel fyrir ung börn (6 mánaða til 4 ára), ásamt foreldrum, öfum og ömmum eða öðrum umönnunaraðilum.
Minnum á auka föt! Aðgangur ókeypis og öll velkomin :)